Tuesday 4 December 2007

Bretinn

Bretinn er ekki allur thar sem hann er sedur, og er i raun ekki sjon ad sja hann greyid. Hinn dœmigerdi Breti er allur ur hlutfollum einhvern veginn. Eyrun of stor fyrir hausinn o.s.frv. Svo er grillid eins og thad er. Visar allt i sitt hvora attina.
Nu er London natturulega fjolmenningarborg og eg imynda mer ad med sma kynblondun megi laga thetta til. Bretinn er natturulega eins og vodka i djus nema ad vantar djusinn. Hann er thvi tordrukkinn svona straight up.

En Bretinn leynir a ser. Bjarni hefur fullyrt vid mig ad Bretar noti hvad mest af svokolludum metro vorum fyrir karlmenn. Metro vorur eru skv. Bjarna, sem er serfrodur um efnid, hvers lags hudkrem, rakvelar (tha fyrir bringu og handakrika) og svo mœtti lengi telja. Nu hefdi eg talid ad t.d. Sviar eda Italir vœru mun grimmari i thessu. 
Eg atti mjog erfitt med ad trua thessu en svo for eg ad athuga malid betur og horfa i kringum mig. Eg for ad sja ad i verslunarmidstodvum er alltaf folk sem er ad lokka menn i eitthvert treatment fyrir thessar vorur. Bjarni let t.d. einu sinni bada hendur sinar upp ur saltkornum og bera a thœr eitthvert kokoshnetusmyrsl. Eg komst ekki skadlaus fra thessu, konan heimtadi ad fa ad pussa a mer eina nogl og syna mer hvernig thetta gœti nu litid ut. Noglin vard glansandi fin, hropadi bara a mann ad setja sma Charlie a hana og lata Bjarna taka eitt slag.

Eftir thetta treatment leid mer furdulega. Eg var ekki eins vanur thessu og Bjarni og fannst ad karlmennsku minni vegid. En thegar madur er i Rom...
Fyrst ad Bretinn er svona vitlaus i thetta tha leikur madur kannski bara med. Enda er thad svo sem rokrett ad Bretinn noti thessar vorur, ekki veitir af ad spasla framan i tha greyin.

Farinn ad pumpa...




Monday 26 November 2007

Fyrsti pistill

Vegna fjolda askorana hef eg akvedid ad henda upp bloggi og reyna ad lemja saman einhverjum hugleidingum vid og vid.
Eg er med breskt lyklabord og thvi verdur folk ad thola thad ad her seu ekki hinir serislensku stafir.

Alltent. Eins og fjolkunnugt er hef eg dvalist her i London i ruma 2 manudi vid annan mann. Bjarna nokkurn Gislason. Vid dveljum reyndar a sitt hvorum stadnum, eg er alveg vid hid "official" hjarta borgarinnar medan Bjarni er i raun vid hid sanna hjarta borgarinnar.
Bjarni byr a blett ofganna hvar vinnualkabretar baka braud fyrir bankanna i glœstum glerhysum, en einnig hvar hinn nyfengni vinur Bjarna, Charlie, heldur sig, thad er i kringum Brick Lane.
Thannig ad Bjarni er i raun a fyrirtaksstad. Hann getur fullnœgt efnishyggjunni med bankadraumunum a sama tima og hann slafrar i sig Al Hallal djupsteiktan kjukling (eda kjuklingaliki alla vega) og spokar sig um a hinum fornu veidilendum Kobba Kvidristu.

Eg er i saklausara umhverfi, og tho. Vid fyrstu syn ma œtla ad litla blomid eg se i miklu bomullarumhverfi, innan um alla turistana og thessi frœgustu kennileiti. En i minum fjolmorgu skemmtigongum um hverfid hef eg rekist a throngar gotur thar sem disœt tadlykt fyllir vitin, lettklœddar konur reyna ad ginna menn i drykk og klamvœdingin birtist manni i formi kynlifsverslana.
Thad er ekki audvelt fyrir saklausan dreng eins og mig ad vera berskjaldadur fyrir ollum thessum osoma. En sem betur fer hef eg reyndan mann i Bjarna sem hefur marga fjoruna sopid og lœtur ser fatt fyrir brjosti brenna.

Eg œtla ad ljuka thessu i bili nuna. Tharf ad hnoda saman einhverri heimavinnu ofan i Bretann.

Over and out